4.4.09
Páskafrí ofl.
Ég verð með jóga 2x í viku á mánudögum og miðvikudögum klukkan 17:30 - 18:30 út maí.
Opið öllum sem hafa einhvern jógagrunn. Hægt að kaupa 5 eða 10 tíma á 4000 og 8000 þús., stakur tími 1000.
Kærleikskveðjur og gleðilega páska
4.1.09
-12 tíma jóganámskeið í janúar-
Nýtt 12 tíma jóganámskeið hefst miðvikudaginn 14. janúar ef næg þátttaka fæst.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum frá 18:45-19:45
Verð 10.000 kr sem greiðist í upphafi námskeiðs, lokað námskeið og ekki boðið upp á staka tíma.
Hentar byrjendum og fólki með jógagrunn sem hefur ekki verið í jóga nýlega.
Rólegir tímar sem miða að því að styrkja líkamann, losa um vöðvabólgu, styrkja kvið og bakvöðva og margt fleira. Góð slökun í lokin. Góðar útskýringar á grunnæfingum og hver og einn vinnur út frá eigin forsendum. Hentar konum og körlum
-ATH- Skráningu lýkur þriðjudaginn 13. janúar
-------------------------------------------------------------------------------------------------
Framhaldshópurinn er á sömu dögum frá 17:30-18:30. Þær hafa verið að iðka jóga í nokkur ár með góðum árangri og henta þeir tímar ekki byrjendum. Tvö pláss laus fyrir fólk með reynslu. Hægt að kaupa tíu tíma í senn á 8000 kr.
Hlakka til að sjá sem flesta Solla S: 8658184
11.8.08
Byrjendanámskeið hefst 1. september
10 tíma byrjendanámskeið
(á Stöðvarfirði)
Hefst 1. september.
Hentar þeim sem ekki hafa stundað jóga eða hafa lítinn grunn, vilja láta sér líða betur og langar að fræðast meira um jóga.
Kenndar grunnæfingar Hatha jóga, auk ýmissar fræðslu.
Geisladiskur með slökun og æfingabók fylgja.
mán-mið kl 19:00-20:00
Verð 12.500,-
Skráningu lýkur 30. ágúst.
ATH Enginn lágmarksfjöldi á byrjendanámskeið J
Jóga á haustönn 2008- Námskeið hefjast 1. sept.

Jóga á Stöðvarfirði
Hefst mánudaginn 1. september ef næg þátttaka næst.
Tímabilið sept- des (30-40 tímar)
Hægt er að kaupa mismunandi kort sem gilda fyrir áramót.
10 tíma kort kostar 11.000.-
20 tíma kort kostar 19.000.-
30 tíma kort kostar 24.000.-
Stakir tímar 1500.-
Kennt verður á mánudögum – miðvikudögum kl 17:45-18:45 og annan hvern laugardag kl 10:00 -11:00.
Vinsamlegast látið vita með þátttöku fyrir 30. ágúst.

31.7.08
Jóga í Ágúst
Í ágúst býð ég upp á jógatíma í litla jógalandinu mínu í Hólalandi 18 fyrir einn til þrjá einstaklinga í einu. Ég kenni Hatha jóga og hægt er að velja tíma sem hentar hverjum og einum, byrjendum og lengra komnum.
Klukkutíminn kostar 3000.- krónur.
Til að panta tíma hringdu í s: 865 8184 eða 475 8972
Í september - desember verð ég með fasta tíma 2-3x í viku á Stöðvarfirði. Nánar auglýst síðar.
1.7.08
- Sólarhyllingin -
Ég rakst á þetta myndband á netinu sem útskýrir vel hvernig sólarhyllingin er gerð. Hægt er að gera hana mjög rólega eða kröftuglega, allt eftir getu hvers og eins.
http://www.youtube.com/watch?v=yuvfHTaftLQ
Ég kann ekki alveg að setja myndbönd inn af Youtube svo það er hægt að setja þennan link inn í vafrarann og læra svo sólarhyllinguna.
Njótið vel :)
8.5.08
Jóganámskeið að styttast í annan endann !
Það er með öllu óráðið hvernig sumarið verður en ég hyggst bjóða upp á einkatíma fyrir 1-3 manna hópa ef ferðamenn með jógaiðkun hafa áhuga á að nýta sér það eða aðrir. Læt auglýsingu upp fljótlega.
Haustið er allsendis óráðið og alveg fullvíst að einhver námskeið fara í gang, ég upplýsi það þegar nær dregur.
Njótið vorsins, dragið djúpt andann..... mmmmmmmmm
Jai Bagvan !