24.3.08

Jógabloggið mitt


Í flugferð á Sólheimum


Góðan og blessaðan daginn. Það er ekki nóg fyrir dömuna að hafa eitt blogg í gangi, nei tvö skulu þau vera. Þessi síða er ætluð sem upplýsingarsíða um jóga og ýmislegt tengt því ,t.d. hvenær námskeiðin mín verða og þess háttar. Þegar ég fer síðan í framkvæmdir á jógalandinu mínu í kjallaranum verða hér myndir af framkvæmdum vinstri hægri.

Næstu jóganámskeið verða sem hér segir:

Reyðarfjörður (8 vikna námskeið). Hefst þriðjudaginn 1. apríl (nei ekkert gabb). Kennt þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 18:45-19:45. Lágmarksfjöldi 15 manns.

Stöðvarfjörður (6 vikna námskeið). Hefst mánudaginn 31. mars. Kennt á mánudögum og miðvikudögum klukkan 17:25-1825.

Breiðdalsvík (6 vikna námskeið). Hefst mánudaginn 31. mars. Kennt á mánudögum og miðvikudögum milli 19:00 og 20:00.

Athugið að þetta eru síðustu námskeið vetrarins og næstu námskeið hefjast með haustinu. Ég er ekki með föst námskeið yfir sumartímann en alltaf hægt að fá einkatíma fyrir einstaklinga og hópa.

Skráning og nánari upplýsingar eru hjá mér í síma: 865 8184

Hlakka til að heyra í ykkur !

No comments: