25.3.08
Snæfellsjökull
Hann trónir hér á toppnum og ekki að ástæðulausu. Síðustu dagar jóganámsins í október síðastliðinn fóru fram á Hellnum á Snæfellsnesi. Þvílík fegurð og orka á einum stað. Ég hef einu sinni áður komið á Snæfellsnesið og var mjög heilluð. Í hvert skipti sem ég sé myndina fer ég til baka og fæ góðu tilfinninguna frá Hellnum og náminu. Fyrri loturnar tvær vorum við á Sólheimum í Grímsnesi, frábær umgjörð í kringum námið.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment