Nú er vika 1 liðin af jóganámskeiðunum og vika tvö að hefjast. Ég náði nægjanlegri skráningu á tvö námskeið, á Reyðarfirði og Breiðdalsvík. Nýr og spennandi hópur á Reyðarfirði, mjög áhugasamar konur og frábært að kenna í minna rými en ég er vön að kenna í. Það næst meiri nánd og ég get komið leiðbeiningum vel til skila. Hlakka til að sjá þær styrkjast og mótast á þessum 7 vikum sem eftir eru.
Hér ætla ég að gera tilraun til að setja inn myndband af flinkri jógamömmu :)
Venlig hilsen
Ekki örvænta, ég kenni höfuðstöðuna ekki á námskeiðum með byrjendum :)
7.4.08
Subscribe to:
Posts (Atom)