Nú styttast vornámskeiðin mín í annan endann. Námskeiðinu á Breiðdalsvík lýkur í næstu viku en á Reyðarfirði verð ég út maí. Það er yndislegt að sjá hvað þessar duglegu konur bæta við sig í styrk á ekki lengri tíma og útgeislunin eykst.
Það er með öllu óráðið hvernig sumarið verður en ég hyggst bjóða upp á einkatíma fyrir 1-3 manna hópa ef ferðamenn með jógaiðkun hafa áhuga á að nýta sér það eða aðrir. Læt auglýsingu upp fljótlega.
Haustið er allsendis óráðið og alveg fullvíst að einhver námskeið fara í gang, ég upplýsi það þegar nær dregur.
Njótið vorsins, dragið djúpt andann..... mmmmmmmmm
Jai Bagvan !
8.5.08
Subscribe to:
Posts (Atom)