31.7.08

Jóga í Ágúst

Heil og sæl

Í ágúst býð ég upp á jógatíma í litla jógalandinu mínu í Hólalandi 18 fyrir einn til þrjá einstaklinga í einu. Ég kenni Hatha jóga og hægt er að velja tíma sem hentar hverjum og einum, byrjendum og lengra komnum.

Klukkutíminn kostar 3000.- krónur.

Til að panta tíma hringdu í s: 865 8184 eða 475 8972

Í september - desember verð ég með fasta tíma 2-3x í viku á Stöðvarfirði. Nánar auglýst síðar.

1.7.08

- Sólarhyllingin -

Er samansetning á nokkrum líkamsstöðum sem oftast eru notuð til upphitunar í jógatímum. Æfingaröðin byggir upp góðan hita í líkamanum og byggir einnig upp styrk og liðleika.

Ég rakst á þetta myndband á netinu sem útskýrir vel hvernig sólarhyllingin er gerð. Hægt er að gera hana mjög rólega eða kröftuglega, allt eftir getu hvers og eins.



http://www.youtube.com/watch?v=yuvfHTaftLQ

Ég kann ekki alveg að setja myndbönd inn af Youtube svo það er hægt að setja þennan link inn í vafrarann og læra svo sólarhyllinguna.

Njótið vel :)