Nýtt 12 tíma jóganámskeið hefst miðvikudaginn 14. janúar ef næg þátttaka fæst.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum frá 18:45-19:45
Verð 10.000 kr sem greiðist í upphafi námskeiðs, lokað námskeið og ekki boðið upp á staka tíma.
Hentar byrjendum og fólki með jógagrunn sem hefur ekki verið í jóga nýlega.
Rólegir tímar sem miða að því að styrkja líkamann, losa um vöðvabólgu, styrkja kvið og bakvöðva og margt fleira. Góð slökun í lokin. Góðar útskýringar á grunnæfingum og hver og einn vinnur út frá eigin forsendum. Hentar konum og körlum
-ATH- Skráningu lýkur þriðjudaginn 13. janúar
-------------------------------------------------------------------------------------------------
Framhaldshópurinn er á sömu dögum frá 17:30-18:30. Þær hafa verið að iðka jóga í nokkur ár með góðum árangri og henta þeir tímar ekki byrjendum. Tvö pláss laus fyrir fólk með reynslu. Hægt að kaupa tíu tíma í senn á 8000 kr.
Hlakka til að sjá sem flesta Solla S: 8658184
4.1.09
-12 tíma jóganámskeið í janúar-
Subscribe to:
Posts (Atom)